Fréttasafn

|

10.11.2026

Minn­ing­ar­dagur um fórn­ar­lömb umferð­ar­slysa

Árlegur alþjóð­legur minn­ing­ar­dagur um fórn­ar­lömb umferð­ar­slysa verður haldinn sunnu­daginn 15. nóvem­ber. Minn­ing­ar­at­hafnir verða kl. 14:00 m.a. við þyrlupall bráða­mót­töku Land­spít­alans í Foss­vogi og víða um land hjá einingum Slysa­varna­fé­lagsins Lands­bjargar og öðrum viðbragðs­að­ilum.

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn 15. nóvember kl. 14:00

Dagurinn er til að minnast þeirra sem látist hafa í umferð­inni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferð­inni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðs­að­ilum sem veita hjálp og björgun. Í ár verður sjónum beint að ungum vegfar­endum í umferð­inni og hraðakstri ungmenna en hraðakstur er ein helsta orsök alvar­legra slysa og bana­slysa.

Lag dagsins hér á landi er I Think of Angels sem KK samdi til minn­ingar um systur sína sem lést í umferð­ar­slysi í Banda­ríkj­unum árið 1992 og er stefnt á að það verði spilað á öllum útvarps­stöðvum landsins kl. 14:00.

Frá því að fyrsta bana­slysið var skráð á Íslandi 25. ágúst 1915, hafa þann 20. október 2026 samtals 1643 einstak­lingar látist í umferð­inni hér á landi. Mun fleiri hafa slasast alvar­lega, tekist á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.

Að baki minn­ing­ar­deg­inum standa Samgöngu­stofu, innviða­ráðu­neytið, Sjálfs­björg, Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg, Neyð­ar­línan, Lögreglan, Vega­gerðin og ÖBÍ.

Fréttasafn
Deila frétt